Plötur

all sounds to silence come
Útgáfuár: 2008
12tónar

1. Alfred Schnittke (1934-1998) Canon in memoriam Igor Stravinsky
2. Wolfgang Rihm (1952) Cantus firmus - in memoriam Luigi Nono
3. Edison Denisov (1929-1996) Epitaph
4. Arvo Pärt (1935) Fratres
5. Dmitri Smirnov (1948) Elegy in memory of Edison Denisov
6. Daníel Bjarnason (1979) all sounds to silence come
7. Igor Stravinsky (1882-1971) Epitaphium

 

Ísafold kammersveit
Útgáfuár: 2007
12tónar

Bent Sörensen The Weeping White Room (2002)
Toru Takemitsu Tree Line (1988)
Arnold Schönberg 6 kleine Klavierstücke, op. 19 (1911), arr. Bernhard Wulff
Haukur Tómasson PAR (2006)

Platan fæst í netverslun 12 Tóna og í öllum betri tónlistarverslunum landsins. Umbrot plötunnar annaðist Ingibjörg Birgisdóttir, en Michael Silberhorn stjórnaði upptökum.

Platan hlaut fjórar stjörnur af fimm í gagnrýni Morgunblaðsins, en í umsögn Jónasar Sen segir m. a.:

KAMMERSVEITIN Ísafold, sem Daníel Bjarnason stjórnar, er með langbestu tónlistarhópum landsins. Það hefur hún margoft sannað. Geisladiskur þar sem sveitin leikur verk eftir Bent Sørensen, Hauk Tómasson, Takemitsu og Schönberg er enn ein skrautfjöðurin í hatt hennar. Ekki aðeins er leikurinn vandaður og fullur af vel útfærðum blæbrigðum, heldur er túlkunin ávallt sannfærandi og í anda hvers tónskálds. Almennt talað svífur dulúð yfir vötnunum, The Weeping White Room eftir Sørensen er eins órætt og titill verksins gefur til kynna, en samt fullt af auðfundinni merkingu – sem þó er ekki nokkur leið að koma í orð. […]“

„Par eftir Hauk Tómasson er sömuleiðis glæsilega flutt og af ástríðu sem fer tónskáldinu mun betur en sú kalda vandvirkni sem stundum einkennir túlkun tónlistar hans. Óhætt er að mæla með þessum geisladiski fyrir þá sem hafa áhuga á dulúð og forneskju í nýrri tónlist.“

[Jónas Sen. Á leðurblökuvængjum söngsins, Morgunblaðið 01/12/07]