Kammersveitin Ísafold var stofnuð árið 2003. Fyrsta verkefni sveitarinnar var tónleikaferð um landið en síðan þá hefur sveitin haldið fjölda tónleika. Ísafold sérhæfir sig í flutningi tuttugustu aldar- og samtímatónlistar og leggur mikla áherslu á vandaðan flutning og fjölbreytta efnisskrá. Markmið sveitarinnar er að þessi tónlist nái til eyrna sem flestra og hefur Ísafold því unnið með fjölda listamanna af ólíkum sviðum.
Félagar Ísafoldar hafa allir skarað fram úr á sínu sviði og sumir hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar. Nokkur íslensk tónskáld hafa samið verk sérstaklega handa sveitinni, þ. á m. Haukur Tómasson, sem hlaut Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2004. Sveitin hefur hvarvetna hlotið góða dóma í fjölmiðlum og vakið athygli fyrir vandaðan og kraftmikinn flutning á tónleikum sínum. Sveitin gaf út sína fyrstu plötu hjá útgáfufyrirtækinu 12 Tónum árið 2007 sem innihélt m. a. verk eftir Schönberg, Sørensen og Takemitsu. Árið 2008 hlaut Ísafold Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins í flokki sígildrar- og samtímatónlistar.
Ísafold er Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2008.
![]()
Tónlistarsjóður Menntamálaráðuneytis
Vefstjóri: Björn Erlingur Flóki Björnsson
bjorn (hjá) isafold.net
Hönnun: Ingibjörg Birgisdóttir
inga (hjá) isafold.net